Árbók 2000

 

Ég er fædd 1941 og man fyrst eftir að hafa gert mér grein fyrir ártali 1948,

þá sjö ára, ég man að mér fannst það nokkuð merkilegt að ár væru talin,

mér flaug ekki einu sinni í hug árið 2000.

 

Seinna ef ég hugsaði um árið 2000 þá var það svo óralangt í burtu í eilífðinni

að það taldist ekki með og eiginlega ómögulegt að ímynda sér að það kæmi.

 

Nú er komið að því, allt í einu er árið 2000 að byrja. Sumir telja þessi áramót vera aldamót.

Ég er því ekki sammála en tel aldamótin vera í lok ársins.

 

Þegar ég lít til baka er þetta enginn tími, aðeins sjónhending. Hvað varð af öllum þessum árum?

Hvernig gátu þau liðið svona hratt?

 

Árið 2000 málaði ég eina mynd fyrir

hvern dag ársins í árbókina mína sem er hringlaga

og blöðin ofin saman með trépinnum og er hver sólarhringur

ein opna, 366 dagar því árið 2000 var hlaupár. Einn dagur í viðbót við venjulegt ár.

*** 

Nú er bókin geymd niður í kössum og bíður betri tíma,

en það er hægt að skoða hana á Veraldavefnum þar sem hún verður líka geymd um nálæga framtíð